„Við erum það ríki þar sem gengur einna best í heiminum. Við viljum samt halda áfram að sækja fram. Það ætlum við að gera saman og við ætlum að hafa svolítið gaman,“ sagði Lilja Dögg Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins, við samflokksmenn sína þegar hún tilkynnti framboð sitt til formanns Framsóknarflokksins fyrr í kvöld. Hún segist ætla að leggja áherslu á gleðina.„Ég hlakka til að fara í þetta verkefni og nálgast það af jákvæðni og bjartsýni,“ segir Lilja í samtali við fréttastofu.Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, hefur þegar tilkynnt um framboð til formanns svo ljóst er að stefnir í formannslag.Tók þig langan tíma að komast að þessari niðurstöðu?„Ég hugsaði auðvitað um hvað væri best fyrir flokkinn og ég hef auðvitað verið í samtali við flokksfélaga a