Tveir voru dæmdir til að greiða konu þrjár milljónir í miskabætur fyrir nauðgun. Þeir voru áður sýknaðir í refsimáli fyrir Héraðsdómi Reykjaness, auk þess sem bótakröfu konunnar var vísað frá dómi. SÝKNAÐIR Í HÉRAÐSDÓMI REYKJANESS Héraðssaksóknari ákærði tvo menn til refsingar fyrir nauðgun með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 8. mars 2020 á heimili annars mannsins beitt konu grófu kynferðisofbeldi og ólögmætri nauðung. Í sakamálinu var einkaréttarkrafa stefnanda, sem var tekin upp í ákæru.Mennirnir voru báðir sýknaðir í Héraðsdómi Reykjaness í nóvember sama ár og var einkaréttarkröfu stefnanda vísað frá dómi. DÆMDIR Í ÞRIGGJA ÁRA FANGELSI Í LANDSRÉTTI Ákæruvaldið áfrýjaði dómnum til Landsréttar. Landsréttur sakfelldi mennina og dæmdi þá í þriggja ára fangelsi í desember 2024. Þá