Karlmaður sem lét færa á fimmta þúsund hársekki frá hnakka ofan á hvirfil í Tyrklandi segir ekkert feimnismál að fara í hárígræðslu. Íslenskir karlmenn flykkjast þangað í aðgerðirEgill Ploder dagskrárstjóri á FM957 fór í hárígræðslu í fyrradag á sjúkrahúsi í Istanbúl í Tyrklandi og bættist þar í sístækkandi hóp, en undanfarna mánuði hafa um tíu íslenskir karlmenn farið þangað í hverjum mánuði í þessum erindagjörðum á vegum ráðgjafarinnar Gefur og hugsanlega hafa fleiri til viðbótar farið á eigin vegum eða annarra.Þetta er ekkert feimnismál segir Egill Ploder útvarpsmaður sem jafnar sig eftir hárígræðslu í Tyrklandi og hlakkar til að gefa sér lausan tauminn í hárgreiðslum. Um tíu íslenskir karlmenn á mánuði hafa farið þangað í þeim erindum að undanförnu. 4.400 HÁRSEKKIR Egill kom til Ist