Lilja Dögg Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins og fyrrum ráðherra og þingmaður, ætlar að bjóða sig fram til formennsku flokksins. Þessu lýsti hún yfir á félagsfundi Framsóknarfélags Reykjavíkur á Hilton Reykjavík Nordica rétt um klukkan níu í kvöld.Í samtali við fréttastofu nú rétt í þessu segir Lilja að það sé gríðarlega mikilvægt að Framsóknarflokkurinn sé sterkt pólitiskt afl á Íslandi.„Við höfum sýnt það í gegnum tíðina að við höfum getað tekist á við stærstu áskoranir þjóðarinnar inn í nýja tíma. Till þess að geta gert það þurfum við að byggja upp flokkinn og ég er mætt á skófluna,“ segir hún.Lilja segist ætla að leggja áherslu á gleðina og passa að Ísland gangi ekki inn í ESB.„Við þurfum að komast að því hvað fór úrskeiðis og hvernig við komumst aftur á dagskrá íslenskra