Snjór og kuldi í október, kaldur en mildur nóvember, hláka í desember. Já, þessi vetur hefur sannarlega haldið skíðafólki um allt land á tánum. Mörg skíðasvæði voru opnuð um jólaleytið og hafa síðan tekið einn dag í einu enda hefur veðrið verið alla vega.Dalvíkindum tókst að framleiða snjó fyrir jól en hann hvarf í hlákunni um jólin. Aftur var framleiddur snjór eftir jól og nú er barist við að halda í hvert einasta snjókorn. Á skíðasvæðinu á Siglufirði er einungis náttúrulegur snjór og allt kapp er lagt á að halda í hann.„Allir eru skíðaþyrstir á þessum tíma árs og við Íslendingar skíðaóð þjóð svo ég skil það vel og myndi vera brjálaður líka. En auðvitað reynum við alltaf að hafa opið þegar við getum,“ segir Birgir Egilsson, forstöðumaður skíðasvæðisins á Siglufirði.