Öllum starfsmönnum Vélfags hefur verið sleppt úr haldi lögreglu. Þetta staðfestir Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari sem segir að öllum hafi verið sleppt í gærkvöldi að lokinni skýrslutöku.Alls voru fimm handteknir í gær, þar á meðal Alfreð Tulinius stjórnarformaður við rannsókn héraðssaksóknara sem framkvæmdi einnig húsleit á sjö stöðum tengdum Vélfagi.Rannsókn héraðssaksóknara hófst eftir að ríkissaksóknari fól embættinu að rannsaka mál Vélfags. Þetta kemur fram í svari ríkissaksóknara við fyrirspurn fréttastofu.Rannsókn héraðssaksóknara snýr að meintum brotum á viðskiptaþvingunum en Vélfag er eina íslenska fyrirtækið sem sætt hefur slíkum þvingunum vegna meintra tengsla sinna við Rússland og rússneska skuggaflotann.Alls fór húsleit fram á sjö stöðum sem tengdust fyrirtækinu. Þar á með