Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Mótmæltu réttarhöldum yfir konum sem klifruðu upp í möstur hvalbáta

„Það er ekki glæpur að bjarga hvölum“ og „Það er engin rétt leið til að breyta rangt“ stóð á ensku á spjöldum mótmælenda sem tóku sér stöðu í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.Þar hófust réttarhöld yfir tveimur konum sem klifruðu upp í möstur hvalbáta í Reykjavíkurhöfn og hlekkjuðu sig þar fastar til að mótmæla hvalveiðum.Sahar Babei og Elissa May Phillips eru ákærðar fyrir húsbrot og að virða ekki fyrirmæli lögreglu í mótmælum sínum í september 2023.Þær héldu til í útsýnisturnum í möstrum hvalbátanna í rúmlega sólarhring. Mótmæli þeirra vöktu mikla athygli. Lögregla kom á vettvang sem og fjöldi fólks sem lýsti stuðningi við mótmælin.Hvalur, sem á hvalskipin, lagði fram kæru hjá lögreglu. Kristján Loftsson, forstjóri fyrirtækisins, er meðal þeirra sem gefa skýrslu fyrir dómi í dag.Fjallað va
Mótmæltu réttarhöldum yfir konum sem klifruðu upp í möstur hvalbáta

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta