Hægfara kólnun er á fasteigna- og leigumarkaði að sögn yfirhagfræðings Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, HMS. Engin merki eru um annað en að sú þróun haldi áfram næstu mánuði.„Ég myndi lýsa ástandinu sem hægfara kólnun, bæði á fasteigna- og leigumarkaði og svo líka á byggingamarkaði,“ segir Jónas Atli Gunnarsson, yfirhagfræðingur HMS.Eftirspurn á fasteignamarkaði er ágæt en framboðið er það mikið að verðþrýstingur hefur minnkað töluvert. „Við sjáum það að fasteignaverð er að lækka milli mánaða og hefur hækkað minna en verðbólgan síðustu tólf mánuði.“Leiguverð sé líka að lækka á milli mánaða. „Við sjáum fylgni á milli þess að greiðslubyrði lána hjá fólki hefur lækkað og þá hefur dregið úr verðþrýstingi á leigumarkaði samhliða því síðustu mánuði. Og ef við förum í byggingamarkaðinn eru enn m