Samdráttur varð í útflutningi á bílum frá Japan til Bandaríkjanna á síðasta ári.EPA / EVERETT KENNEDY BROWNÚtflutningur frá Japan til Bandaríkjanna féll um 11,1% í desember og alls rúmlega 4% yfir allt árið 2025. Ástæðan er sögð samdráttur í útflutningi á bílum og bílapörtum.Aukinn innflutningur á eldsneyti, kornvörum og aflgjöfum til Japan frá Bandaríkjunum voru helstu ástæður fyrir halla í vöruskiptajöfnuði milli landanna. Þjóðirnar náðu samkomulagi um 15% tolla í júlí síðastliðnum.Yfirvöld í Japan og stjórnendur fyrirtækja hafa þó gagnrýnt tollana og segja þá hærri í samanburði við tollanna sem voru milli landanna í tíð fyrri ríkisstjórnar Bandaríkjanna.