Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Nokkurra saknað eftir að skriða féll á tjaldsvæði

Lögregla og björgunarlið að störfum við rætur Maunganui-eldfjallsins.AP/STUFF / STUFFNokkurra er saknað eftir að skriða féll á tjaldsvæði við rætur kulnaðs Maunganui-eldfjallsins á norðanverðu Nýja Sjálandi, að sögn lögreglu og björgunarsveita. Lögreglustjóri telur um tug manna hafa orðið undir skriðunni.Gestir tjaldsvæðisins hófu þegar björgunaraðgerðir og segja raddir hafa borist undan braki baðhúsbyggingar sem skriðan skall á. Björgunarlið segir raddirnar hafa þagnað. Jarðfallið er rakið til úrhellisrigningar sem gekk yfir Norðureyju og björgunarlið hefur vísað öllum á brott af tjaldsvæðinu af ótta við aukin skriðuföll.
Nokkurra saknað eftir að skriða féll á tjaldsvæði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta