Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Breska lávarðadeildin er fylgjandi banni á notkun samfélagsmiðla fyrir börn yngri en 16 ára

Breska lávarðadeildin vill banna notkun samfélagsmiðla fyrir börn undir 16 ára aldri.EPA / CRISTOBAL HERRERA-ULASHKEVICHBreska lávarðadeildin er fylgjandi banni á notkun samfélagsmiðla fyrir börn yngri en sextán ára en kosið var um það í deildinni í dag. Með þessu eykst pressan á bresku ríkisstjórnina um að taka upp sams konar bann og Ástralir tóku upp nýverið. Keir Starmer forsætisráðherra hét því að hafa hagsmuni barna í huga en ríkisstjórnin ætlaði að bíða eftir niðurstöðum ráðgjafa sem von er á í sumar. Stjórnarandstaðan og Verkamannaflokkurinn hafa kallað eftir því að bannið verði tekið upp. Í spurningakönnun YOUGOV í desember kom fram að sjötíu og fjögur prósent Breta styðji bann við samfélagsmiðlanotkun barna innan 16 ára.
Breska lávarðadeildin er fylgjandi banni á notkun samfélagsmiðla fyrir börn yngri en 16 ára

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta