Ráðherranefnd um öryggis- og varnarmál hefur haldið fimm fundi í janúar um stöðu alþjóðamála. Settur ríkislögreglustjóri segir skiljanlegt að almenningur sé hugsi yfir þessu. Ástandið er grannt vaktað hjá embættinu.Átakalínur í alþjóðamálum eru mun nærri Íslandi en áður. Gaza og Úkraína eru langt í burtu. Grænland er má segja í bakgarðinum. Stysta vegalengdin milli Íslands og Grænlands er innan við 300 kílómetrar.Frá Straumnesi á norðanverðum Vestfjörðum á milli Rekavíkur og Aðalvíkur eru um 285 kílómetrar að austurströnd Grænlands. Það er rúmlega 400 kílómetrum styttra en til næsta lands, Færeyja. Stysta loftlínan þangað frá Íslandi er um 693 kílómetrar.Embætti ríkislögreglustjóra vaktar stöðugt vendingar í alþjóðamálum vegna Grænlands og hugsanlegt áhrif innanlands sökum nálægðarinnar vi