Ingibjörg Þórðardóttir, fyrrverandi fréttstjóri hjá BBC og CNN, er á alþjóðaefnahagsráðstefnunni í Davos. Þar er hún að vinna að málefnum hafsins, sem er ein megináhersla ráðstefnunnar í ár.Hún ræddi við fréttastofu um andrúmsloftið eftir ræðu Bandaríkjaforseta þar í dag. Þar vöktu orð Trumps um Ísland athygli, og spurningar, hvort hann hafi verið að meina Grænland.„Fólk er að segja bíddu, áttar hann sig á því að þetta eru tvö mismunandi lönd? Skilur hann hvað hann er að gera, eða er möguleiki á því að hann sé að tala um Ísland þegar við höldum að hann sé að tala um Grænland? Ég held að flestir haldi að þetta sé ruglingur,“ segir Ingibjörg.Hún lýsir því að þegar hún ræddi við fólk eftir ræðuna, og sagðist vera frá Íslandi, hafi viðbrögðin verið mismunandi.„Sumir fara að hlæja og segja: „Jæ