Sýrlenski herinn fór inn í Al-Hol fangabúðirnar í morgun. Þar eru vistaðir ættingjar manna sem grunaðir eru um að hafa verið liðsmenn hryðjuverkasamtakanna sem kenna sig við íslamskt ríki. Kúrdískar sveitir hörfuðu þaðan í gær til þess að verja borgir í norðurhluta Sýrlands fyrir sýrlenska hernum. Það var áður en vopnahléi var lýst milli þeirra. Fréttamaður AFP á staðnum segir að fjöldi sýrlenskra hermanna hafi opnað járnhlið búðanna og farið inn á meðan aðrir stóðu vörð við innganginn. YFIR 6000 ERLENDAR KONUR OG BÖRN Al-Hol búðirnar eru í eyðimörk í Hasakeh héraði. Þar eru um 25 þúsund manns vistaðir, þar af fimmtán þúsund Sýrlendingar og um 6.300 erlendar konur og börn af 42 þjóðernum. Þetta eru stærstu fangabúðirnar sem vista grunaða hryðjuverkamenn. Kúrdískar hersveitir leiddu bará