Fimm hafa verið handteknir í tengslum við rannsókn Héraðssaksóknara á starfsemi fyrirtækisins Vélfags. Einn þeirra er stjórnarformaður fyrirtækisins, Alfreð Tulinius. Hinir fjórir tengjast starfsemi fyrirtækisins á einn eða annan hátt.Aðgerðirnar standa enn yfir og litlar upplýsingar er að fá. Ekki hafa fengist svör um það að hverju rannsókn embættisins beinist.Heimildir fréttastofu herma að gerð hafi verið húsleit í morgun, meðal annars í höfuðstöðvum fyrirtækisins á Akureyri.Vélfag er eina íslenska fyrirtækið sem sætt hefur viðskiptaþvingunum vegna meintra tengsla við skuggaflota Rússlands.Fréttin hefur verið uppfærð.