Donald Trump Bandaríkjaforseti minntist nokkrum sinnum á Ísland í ræðu sinni á alþjóðaefnahagsráðstefnunni í Davos í dag. Hann kenndi Íslandi um dýfu á bandarísku hlutabréfamörkuðum í gær og sagði Ísland hafa kostað Bandaríkin of mikinn pening. Óvíst er hvort hann hafi verið að meina Grænland þegar hann sagði Ísland. VIRÐIST RUGLAST Á GRÆNLANDI OG ÍSLANDI Trump fór yfir víðan völl í ræðu sinni sem beðið var með mikilli eftirvæntingu. Óljóst er hvort hann hafi ruglast á Grænlandi og Íslandi því hann virtist óvart nefna Ísland í stað Grænlands. Eftir að hafa farið yfir það hve miklu hann teldi Bandaríkin hafa áorkað í alþjóðamálum og hve margir hermenn Rússlands og Úkraínu hafi dáið sagði Trump að Bandaríkin væru að hjálpa NATO og Evrópu.„Þar til síðustu daga þegar ég sagði þeim frá Íslan