Þingmenn á Evrópuþinginu í Strassborg samþykktu í morgun að vísa nýgerðum fríverslunarsamningi Evrópusambandsins við Mercosur-ríkin í Suður-Ameríku til Evrópudómstólsins, sem á að fara yfir lögmæti samningsins.Naumur meirihluti samþykkti þessa tillögu, 334 þingmenn gegn 224. Samningurinn, sem á að nema úr gildi 90% allra tolla milli verslunarsvæðanna, hefur verið mjög umdeildur í Evrópu. Aðeins nokkrir dagar eru síðan leiðtogar ESB skrifuðu undir við hátíðlega athöfn í Paragvæ.Talsmaður framkvæmdastjórnarinnar lýsir yfir vonbrigðum með þessa ákvörðun, á tímum þar sem Evrópusambandsríkin þurfi nauðsynlega aðgengi að nýjum mörkuðum.Frá undirritun samningsins á dögunum.EPA / JUAN PABLO PINO