Eftirspurn eftir sætum í fyrstu flugferðum Niceair reyndist minni en forsvarsmenn fyrirtækisins höfðu vonast eftir. Þeir hafa ákveðið að fresta því fram á seinni hluta árs að fyrirtækið hefji starfsemi.Farþegum sem keyptu ferð með Niceair til Kaupmannahafnar í næsta mánuði var í gær tilkynnt að ekkert yrði af fluginu.Í fréttatilkynningu frá Niceair segir að upphafi starfseminnar hafi verið frestað eftir ítarlega úttekt á bókunum og öðrum þáttum starfseminnar. Fyrstu flugferðirnar verða farnar á seinni hluta árs, að því gefnu að vissum markmiðum í rekstri og fjármögnun verði náð.Fólk sem átti bókað flug fær það endurgreitt að fullu og 25 prósenta inneign að auki.Nýtt fyrirtæki tilkynnti í desember að það myndi bjóða upp á flugferðir frá Akureyri undir nafni Niceair. Þá var hafin sala á fyrs