Farþegar hafa ekki haft samband við Neytendasamtökin vegna ákvörðunar flugfélagsins Niceair að hætta við jómfrúarferð sína í febrúar. Samkvæmt upplýsingum frá Breka Karlssyni, formanni Neytendasamtakanna, ættu sömu reglur að gilda og þegar flug eru felld niður. Farþegi eigi rétt á að fá endurgreitt eða að flugfélagið komi honum á áfangastað. Hann bendir á að allar upplýsingar sé að finna á heimasíðunni ns.is/flug.Nýtt fyrirtæki undir merkjum Nice Air var kynnt undir lok síðasta árs.RÚV / Kristófer Óli Birkisson