Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Þrálátar austanáttir næstu daga

Hitastigið verður að mestu yfir frostmarki um allt land í dag en það blæs nokkuð á landsmenn. Íbúar norðan- og vestanlands geta búist við því að þar haldist þurrt en annars staðar verður væta með köflum. Í kvöld bætir í vind og þá verður samfelld rigning suðaustan- og austantil.Veðurspáin er svohljóðandi:Gengur í austan átta til fimmtán metra á sekúndu. Væta með köflum, en að mestu þurrt norðan- og vestanlands. Hiti eitt til átta stig. Bætir heldur í vind í kvöld og samfelld rigning suðaustan- og austantil.Austan tíu til átján metrar á sekúndu og rigning á morgun, einkum suðaustan- og austanlands, en úrkomulítið á Norðurlandi
Þrálátar austanáttir næstu daga

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta