Donald Trump Bandaríkjaforseti segir umfangsmikil fundahöld um málefni Grænlands fram undan og kveðst sannfærður um að tillögur hans muni gleðja ríki Atlantshafsbandalagsins jafn mikið og Bandaríkin.Trump ítrekaði á blaðamannafundi í gærkvöld að Bandaríkin þörfnuðust Grænlands af öryggisástæðum og sagði engan hafa gagnast NATÓ betur en hann. Eitthvað gott muni gerast.„Það eru margir fundir fram undan og ég er viss um að við finnum einhverja lausn,“ sagði Trump. Hann sagðist ítrekað trúa á niðurstöðu að eigin skapi þrátt fyrir að danskir og grænlenskir ráðamenn hafni algerlega yfirtöku Bandaríkjanna á Grænlandi.Hann sagðist heldur ekki hafa rætt við Grænlendinga en fullyrti þá verða himinlifandi með hugmyndir sínar. Hann vildi lítt tjá sig um viðvaranir nokkurra evrópskra leiðtoga um endalo