Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Zelensky fer ekki til Davos

Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu tilkynnti í gær að hann fari ekki á Alþjóðlega efnahagsþingið í Davos í Sviss. Hann sagðist velja Úkraínu í þetta sinnið frekar en að fara á efnahagsþingið í ljósi árása Rússa á orkuinnviði landsins undanfarið og neyðarástands sem hefur skapast í orkumálum vegna árásanna.Úkraínsk sendinefnd er í Davos til að funda með sendinefnd frá Bandaríkjunum um öryggisráðstafanir og orkumál. Zelensky útilokar þó ekki að hann fari á efnahagsþingið ef útlit verður fyrir að ákvarðanir verði teknar varðandi fleiri eldflaugavarnarkerfi og fjárframlög til orkumála.Þúsundir íbúa í Kyiv hafa verið án hita og rafmagns eftir árásir Rússa síðustu daga. Miklar vetrarfrosthörkur hafa verið í Úkraínu undanfarið og neyðarskýli hafa verið reist víða um Kyiv sem íbúar geta komið í ti
Zelensky fer ekki til Davos

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta