Sverrir Bergmann Magnússon ætlar að láta af störfum sem bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ í febrúar því hann hefur verið ráðinn samfélags- og sjálfbærnistjóri þróunarfélags Keflavíkur eða Kadeco.Sverrir greinir frá þessarri ákvörðun sinni á færslu á Facebook í kvöld og segir hana tekna til að gæta jafnræðis, þar sem félagið starfi bæði í Suðurnesja- og Reykjanesbæ. Hann var í þriðja sæti Samfylkingarinnar í síðustu sveitarstjórnarkosningum og hefur getið sér gott orð sem tónlistarmaður.Sverrir kveðst ekki ætla að gefa kost á sér í sveitarstjórnarkosningunum í vor en muni áfram verða varaþingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Jafnframt muni hann hafa hag samfélagsins á Suðurnesjum að leiðarljósi.