Færeyska landsstjórnin íhugar að leggja fram frumvarp til laga sem banna ungu fólki undir átján ára að kaupa orkudrykki.Atvinnuvegaráðherra Færeyja segir neyslu orkudrykkja óholla börnum og ungmennum.RÚV / Valgerður Gréta G. GröndalKvF fjallar um málið. Í tillögu atvinnuvegaráðherra segir að slíkir drykkir séu skaðlegir heilsu barna og ungmenna. Því þurfi að setja strangar reglur um sölu drykkjanna í verslunum og söluturnum um allt land. Samtök atvinnurekenda, Handilsvinnufélagið, og fleiri hafa tekið undir tillögur landsstjórnarinnar.