Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Netflix býður staðgreiðslu fyrir Warner Bros. samsteypuna

Netflix hefur uppfært skilmála kauptilboðs síns í Warner Bros Discovery. og býður nú staðgreiðslu, stundum kallað reiðufé, fyrir samsteypuna. Kauptilboðið hljóðar enn upp á 82,7 milljarða bandaríkjadala en í upphafi átti það að byggja á blöndu af hlutabréfum og reiðufé. Áætlað er að uppfært tilboðið verði borið undir hluthafa í Warner Bros Discovery eigi síðar en í apríl.Ætla má að Netflix hafi uppfært tilboð sitt meðal annars til að gera það meira sannfærandi en kauptilboð Paramount Skydance, sem Warner Bros Discovery þó hafnaði. Það tilboð er upp á 108,4 milljarða bandaríkjadala og var einnig staðgreiðslutilboð. Eftir að stjórnendur Warner Bros höfnuðu tilboðinu reyndi Paramount við fjandsamlega yfirtöku (e. hostile takeover) og bað hluthafa í fyrirtækinu að fara fram á að tilboðið yrði
Netflix býður staðgreiðslu fyrir Warner Bros. samsteypuna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta