Sverrir Bergmann Magnússon, tónlistarmaður, varaþingmaður og bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ, hefur ráðið sig í starf samfélags- og sjálfbærnisstjóra hjá Kadeco, þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar. Þar sem fyrirtækið starfar bæði í Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ hefur hann ákveðið að hætta í bæjarstjórn og kveðst ekki bjóða sig fram aftur.