Það er óhætt að segja að það hafi verið erfitt að fóta sig á höfuðborgarsvæðinu í morgun, glerklakabrynja var yfir öllu. Fólk átti í erfiðleikum með að komast leiðar sinnar og fór hægt yfir, sumir stóðu í stað og aðrir fóru jafnvel afturábak.Þú ert í morgungöngu, hvernig gengur?„Bara illa. Alveg hræðilegt. Það er bara stokkurinn hér fram og til baka sem við getum notað,“ segir Vigdís Pálsdóttir sem nýtti hitaveitustokk til að fara út að ganga með hundinn.Starfsmenn borgarinnar hófu hálkuvarnir klukkan fjögur í nótt en í kjölfarið fór að rigna.„Og malbikið mjög kalt þannig að það sem var gert í nótt var búið að bræða sitt eða hreinlega skolaðist í burtu og svo fraus bara aftur í þessu sko,“ segir Valur Fannar Magnússon, verktaki hjá Reykjavíkurborg.