Eftir algjöra þögn frá því Sigurður Ingi Jóhannsson tilkynnti í október að hann ætlaði ekki að halda áfram sem formaður kom loks framboð. Ekki seinna vænna enda rúmlega þrjár vikur í flokksþing þar sem eftirmaður Sigurðar verður kosinn. Þingflokksformaðurinn Ingibjörg Isaksen reið á vaðið og tilkynnti framboð í morgun.Framboðsfrestur rennur út á flokksþinginu sjálfu þannig að nöfn geta bæst í pottinn alveg fram að kosningum. Varaformaðurinn Lilja Alfreðsdóttir og Willum Þór Þórsson, fyrrum ráðherra flokksins, segjast í samtali við fréttastofu enn vera að íhuga málið en að það styttist í ákvörðun. STYTTIST Í ÁKVÖRÐUN HJÁ WILLUM OG LILJU Viðmælendur fréttastofu innan Framsóknar segja líklegt að annaðhvort þeirra tilkynni framboð á næstu dögum, jafnvel í lok þessarar viku. Fjöldi nýskránin