Ísland leikur sinn fyrsta leik í milliriðli í Malmö á föstudaginn. Íslenskir stuðningsmenn eru ólmir að komast á EM til að hvetja strákana okkar.Karolína Pétursdóttir, forstöðumaður íslenska sölusvæðisins hjá Icelandair, segir að flugfélagið hafi bætt við tæplega 560 sætum til Kaupmannahafnar í kringum handboltann, þar af 315 sætum fyrir milliriðilinn.Karolína segir það undirstrika áhuga Íslendinga að bæta þurfi við flugum til Kaupmannahafnar, þegar hafi flugáætlunin verið stór.„Það er rosalega mikill áhugi og við fundum strax að vuið þyrftum að gera eitthvað meira við sjálf bíðum spennt að sjá hvernig framhaldið verður.“ AÐLAGA ÁÆTLANIR EFTIR VELGENGI LIÐSINS Hingað til segir Karólína allt hafa gengið vel, gleði Íslendinga sé einskær og spenningurinn mikill.Icelandair fylgist áfram með