Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Stóðu fyrir kertafleytingu á Tjörninni

Indivisible Iceland stóðu fyrir kertafleytingu á Tjörninni, í Reykjavík, í dag.Í hópnum eru Bandaríkjamenn búsettir hérlendis og fjölskyldur þeirra. Hópurinn er hluti af Indivisible-samtökum bandarískra ríkisborgara víða um heim. Tilgangur kertafleytingarinnar var að ár er liðið frá því að Donald Trump tók við embætti forseta Bandaríkjanna.Indivisble Iceland vill með viðburðinum biðja íslensku ríkisstjórnina að standa með mannréttindum og lýðræði með því að fordæma ofbeldi ICE-liða gegn óbreyttum borgurum í Bandaríkjunum.Nægi þar að nefna þegar fulltrúi ICE skaut Renee Good til bana í borginni Minneapolis þann 7. janúar. Ragnar Visage, ljósmyndari, var við kertafleytinguna.
Stóðu fyrir kertafleytingu á Tjörninni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta