Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Kanna hvort slysið hafi orðið vegna bilunar í lestarteinum

Útilokað hefur verið að skemmdarverk hafi valdið lestarslysi í Andalúsíuhéraði á Spáni í fyrrakvöld. Frá þessu greindi innanríkisráðherra landsins í dag.Rannsókn beinist nú að því hvort slysið hafi orðið vegna bilunar í lestarteinum. 41 fórst í slysinu sem varð þegar tvær hraðlestir skullu saman. 120 slösuðust. Þetta er mannskæðasta lestarslys í landinu í yfir áratug.Forsætisráðherra Spánar hætti við að fara á efnahagsráðstefnuna í Davos vegna slyssins. Konungshjónin mættu á slysstaðinn í dag og hittu björgunarsveitir. Þriggja daga þjóðarsorg hefur verið lýst yfir í landinu.Konungshjón Spánar fóru á slysstaðinn í dag.AP/Europa Press / Joaquin Corchero
Kanna hvort slysið hafi orðið vegna bilunar í lestarteinum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta