Ótrúlegt sjónarspil blasti við þeim sem horfðu til himins yfir landinu í gærkvöld - og reyndar sáust norðurljósin, sem voru óvenju öflug og marglit, á fleiri stöðum í heiminum, meðal annars þar sem þau sjást nær aldrei.„Það sem gerðist í gær var að það kom gos yfir okkur sem kallast kórónugos. Það er bara risavaxið ský úr rafeindum sem skellur á jörðinni og þá varð þessi líka svakalega ljósasýning á himni. Það var mikill þéttleiki og segulsviðið sterkt þannig að allt þetta kom saman til að mynda glæsilega sýn á himni,“ segir Sævar Helgi Bragason jarðfræðingur og umsjónarmaður Stjörnufræðivefsins.Víða mátti sjá einstaka norðurljósasýningu í gærkvöld. Þau orsakast af kórónugosi sem skall á jörðinni. Slíkt gos getur meðal annars valdið truflunum á fjarskiptum og rafmagnskerfum. Búast má við á