Í dag fengu farþegar sem áttu bókað flug í fyrirhugaða jómfrúarferð Niceair 2.0 tölvupóst þess efnis að ekki yrði af fluginu. Akureyri.net greinir frá þessu.Þar segir að í póstinum hafi verið gefið í skyn að árar hafi ekki verið lagðar í bát. Flugið milli Akureyrar og Kaupmannahafnar sé enn á dagskrá en í ljós hafi komið að frekari undirbúnings væri þörf.Í desember var það opinberað að nýtt fyrirtæki undir merkjum Niceair myndi hefja flug milli Akureyrar og Kaupmannahafnar. Tvær ferðir voru á áætlun fyrst um sinn. Martin Michael, forstjóri nýja Niceair, sagði fyrirtækið stefna á hægan vöxt en það hefur engar flugvélar til umráða sjálft.Niceair 2.0, eins og Michael kallaði það, er fjármagnað af eigin fé sem kemur úr fjölskyldurekstrinum Whitesharkgroup. Í viðtali í desember sagðist Michael