Bóndi í Austurríki tók eftir því að Veronika, kýr sem hann heldur sem gæludýr, fór að leika sér með prik sem hún notaði síðan til þess að klóra sér. Kýrin var eins fljót að þekkja raddir fjölskyldumeðlima og flýtti sér til þeirra er kallað var á hana.Veronika er þrettán ára svissnesk kýr sem býr í austurrískum bæ við landamæri Ítalíu.„Ég var að sjálfsögðu undrandi á einstakri greind hennar og hugsaði með mér hversu mikið við gætum lært af dýrum: þolinmæði, ró, nægjusemi og blíðu,“ segir Witgar Wiegele í samtali við breska miðilinn The Guardian. Wiegele er lífrænn bóndi og bakari sem býr í litlum bæ í Karintíu-héraði í Austurríki.Undarlegt athæfi kýrinnar vakti fljótt athygli og fyrr en varði hafði líffræðingum sem sérhæfa sig í greind dýra í Vínarborg borist myndband af kúnni. Sérfræðingar