Sveinn Ægir Birgisson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Árborg og formaður bæjarráðs, býður sig fram til endurkjörs í prófkjöri flokksins 7. mars. Hann var í fjórða sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í síðustu kosningum en stefnir á annað sætið í ár. Hann var varabæjarfulltrúi 2018 til 2022.Sveinn Ægir segir í framboðstilkynningu að kjörtímabilið hafi verið krefjandi en lærdómsríkt, sveitarfélagið hafi glímt við grafalvarlega fjárhagsstöðu og því verið nauðsynlegt að ráðast í erfiðar aðgerðir til að snúa rekstrinum við. Hann segir að áframhaldandi uppbygging og skýr forgangsröðun séu gríðarlega mikilvæg. Sveinn Ægir Birgisson.Aðsend mynd / Aðsend