Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, býður sig fram til formanns á flokksþingi sem haldið verður á Hilton hóteli 14. febrúar.Þetta kemur fram í færslu sem Ingibjörg birtir á Facebook. Sigurður Ingi Jóhannsson, sem leitt hefur flokkinn í níu ár, tilkynnti á miðstjórnarfundi í október að hann ætlaði ekki að gefa kost á sér til áframhaldandi formennsku.Ingibjörg hefur verið þingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi síðan 2021 en þar áður sat hún í bæjarstjórn Eyjafjarðarsveitar og Akureyrar um árabil.Þótt ekki séu nema rúmlega þrjár vikur í flokksþing er það aðeins Ingibjörg sem hefur tilkynnt um framboð. Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður flokksins í Norðvesturkjördæmi, hefur tilkynnt að hann gefi kost á sér í embætti varaformanns.Ingibjörg segir í færslu sinni