Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Bandarískar og kanadískar herflugvélar á leið til Grænlands

Loftmynd yfir Pituffik-geimherstöðina á Grænlandi.EPA-EFE / Thomas TraasdahlHerþotur á vegum bandaríska og kanadíska hersins munu innan skamms koma til bandarísku Pituffik geimherstöðvarinnar á Grænlandi. Það er NORAD, varnarsamstarf Bandaríkjanna og Kanada um flugumferðareftirlit sem stýrir aðgerðum. Í tilkynningu frá NORAD sem birt var á samfélagsmiðlinum X á mánudaginn, kemur fram að aðgerðirnar séu löngu ráðgerðar og byggi á varanlegu varnarsamstarfi milli Bandaríkjanna og Kanada sem og við Danmörku. Þá kemur fram að aðgerðirnar hefðu verið samhæfðar með Danmörku og Grænlandi.
Bandarískar og kanadískar herflugvélar á leið til Grænlands

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta