163 kirkjugestir voru numdir á brott úr tveimur kirkjum af vígamönnum í Kaduna-héraði í Nígeríu á sunnudaginn. Vígamennirnir ruddust inn í kirkjurnar og neyddu fólkið í burtu með sér, en nokkrum tókst að komast undan. Vígahópar fremja mannrán til að krefjast lausnargjalds og mannrán sem þessi hafa færst í aukanna á síðustu árum. Vígahóparnir fara einnig ránsferðir um þorp, brenna hús íbúa og skilja eftir sig sviðna jörð. Árásirnar og mannránin eru tilkomin vegna samkeppni um land og dvínandi landgæða, þótt ástæður þeirra virðist vera af etnískum og trúarlegum ástæðum. Bæði kristnir og múslímar, sem og aðrir trúarhópar, hafa orðið fyrir mannráni og árásum.Donald Trump Bandaríkjaforseta hefur orðið tíðrætt um ótryggt öryggisástand í Nígeríu, sem hann segir beinast gegn kristnum íbúum landsin