Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Forsætisráðherrann knýr fjárlög í gegn án atkvæðagreiðslu

Sébastien Lecornu forsætisráðherra Frakklands ætlar að beita neyðarákvæði í stjórnarskrá landsins til að knýja í gegn fjárlagafrumvarp sitt án þess að þingið fái að kjósa um það. Lecornu hafði áður lofað að grípa ekki til þessa úrræðis.„Ég geri þetta af trega, því ég veit að ég neyðist til að ganga á bak orða minna,“ sagði Lecornu við fjölmiðla. Lecornu, sem leggur áherslu á að leiðrétta fjárhagshalla ríkisins, hefur staðið í viðræðum við ólíka flokka á þingi um fjárlagafrumvarp sitt í þrjá mánuði.Síðustu tveir forverar Lecornu, Michel Barnier og François Bayrou, gripu báðir til þessa úrræðis til að fá samþykki fyrir fjárlagafrumvörpum sínum og féllu báðir fyrir vantrauststillögum stuttu síðar. Lecornu virðist hins vegar hafa fengið vilyrði frá þingmönnum Sósíalistaflokksins um að þeir gre
Forsætisráðherrann knýr fjárlög í gegn án atkvæðagreiðslu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta