Fólksbílar og flutningabílar skullu saman í miklu fannfergi og blindbyl.AP/WZZM / UncreditedYfir eitt hundrað fólksbílar og vöruflutningabílar lentu í árekstri og fóru út af þjóðvegi í vesturhluta Michigan á mánudag í miklu fannfergi og blindbyl. Ríkislögreglan í Michigan sagði að einhverjir hefðu slasast en ekki er talið að neinn hafi látist. Veginum hefur verið lokað en mikið verk er fyrir höndum að hreinsa burt farartækin af svæðinu. Bandaríska veðurstofan hefur varað við því að fólk sé á ferðinni því von sé á enn meiri snjókomu og versnandi færð á þessum slóðum.