Embætti landlæknis gerði minnisblað í kjölfar funda fulltrúa þeirra, Grindavíkurbæjar og Grindavíkurnefndar. Sóttar voru upplýsingar úr samskiptaskrá heilsugæslustöðva og í lyfjagagnagrunni. Grindvíkingahópurinn var fólk með skráð lögheimili í Grindavík 1. júlí 2023 en samburðarhópurinn var með lögheimili annars staðar á landinu.Um mitt ár 2023 hafði kvikugangurinn ekki myndast og ekki gosið á Sundhnúksgígaröðinni. Jörð hafði aftur á móti skolfið í kringum Grindavík frá árslokum 2019. Eldgosin í Fagradalsfjalli hófust um miðjan mars 2021.Greining á kvíða og notkun kvíðalyfja frá 2019 til haustsins 2025 var lengi vel lægri hjá Grindvíkingum en öðrum en jókst svo verulega eftir jarðhræringar og rýmingu bæjarins í nóvember 2023.Efri línan sýnir fjölda afgreiddra lyfjaávísana á kvíðalyfjum á h