Ítalski fatahönnuðurinn Ludovico Clemente Garavani, Valentino, lést á heimili sínu í Róm á Ítalíu í dag. Hann var 93 ára. Valentino fæddist 11. maí 1932 og stofnaði fatamerkið Valentino árið 1959, þá 27 ára. Í gegnum tíðina hefur fatnaður Valentino iðulega verið sýnilegur á rauðum dreglum um allan heim. Ítalski fatahönnuðurinn Valentino.AP / Remy de la Mauviniere