„Við eigum vissulega náið og sérstakt samband við Bandaríkin en það breytir því ekki að framganga núverandi Bandaríkjaforseta gagnvart Grænlandi og gagnvart Danmörku er óásættanleg og henni verður að linna,“ sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag.Tilefnið var fyrirspurn Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins, um hvernig ríkisstjórn hennar ætli að bregðast við þeirri óvissu sem upp er komin vegna ítrekaðra hótana Bandaríkjaforseta um að yfirtaka Grænland.Kristrún sagðist ekki ætla að gefa tommu eftir í að standa með sjálfsákvörðunarrétti Grænlendinga. Hún hafi óskað eftir samtali við formenn allra flokka um þá stöðu sem er uppi en sagði um leið að á ólgutímum sem þessum sé mikilvægt að forystumenn í stjórnvöldum ýki ekki