Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Sólveig býður sig fram í annað til þriðja sæti

Sólveig Skaftadóttir sækist eftir 2. til 3. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Kópavogi fyrir bæjarstjórnarkosningar í vor. Hún starfar í stjórnsýslumálum hjá þjónustu- og nýsköpunarsviði Reykjavíkurborgar en var áður samskiptastjóri stafrænnar miðlunar hjá Orkustofnun og aðstoðarmaður þingflokks Samfylkingarinnar.Sólveig boðar sýn um Kópavog sem betra samfélag með jöfnum tækifærum, bættum samgöngum og skipulagi, bæ sem veiti skýra og aðgengilega þjónustu í takt við þarfir íbúa. Hún segir sveitarstjórnarmál snúast um daglegt líf, skólamál og leikskólamál, þjónustu við íbúa og þá ekki síst eldri borgara.Sólveig Skaftadóttir.Aðsend
Sólveig býður sig fram í annað til þriðja sæti

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta