Danski áfrýjunardómstóllinn Østre Landsret hefur ógilt bann héraðsdóms við því að vitnað verði í það sem fram fór í gæsluvarðhaldsþinghaldi yfir manni sem kastaði tveggja ára gömlum hálfbróður sínum fram af svölum á sjöundu hæð í Høje Gladsaxe í Danmörku fyrir jól. Grunaði myrti móður sína árið 2014.