Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Reyna að uppræta brúna hundamítilinn áður en hann breiðist út

Hundur sem farið var með til skoðunar á Dýraspítalanum í Víðidal vegna kláða og útbrota í andliti reyndist vera með brúna hundamítilinn á sér. Brúni hundamítillinn er sníkjudýr sem hefur einstaka sinnum borist hingað til lands en alltaf tekist að uppræta hann.Matvælastofnun hvetur alla hundaeigendur til að vera á varðbergi svo að brúni hundamítillinn verði ekki landlægur hér á landi.Mítillinn var sendur til rannsókna á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum. Þar var staðfest að þetta væri brúni hundamítillinn.Í tilkynningu Matvælastofnunar segir að unnið sé markvisst að því að koma í veg fyrir að brúni hundamítillinn nái fótfestu. Hingað getur mítillinn borist með fólki og farangri frá löndum þar sem hann er algengur. Þetta á sérstaklega við ef fólk hefur verið í snertingu við
Reyna að uppræta brúna hundamítilinn áður en hann breiðist út

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta