Laugardagskvöldið 17. janúar fór Lögreglan á Norðurlandi eystra í húsleitir og handtökur á fjórum stöðum og sex voru handteknir. Þetta var önnur tveggja stórra aðgerða sem Lögreglan á Norðurlandi eystra fór í um helgina.Tilgangur aðgerðarinnar 17. janúar var að hafa uppi á skotvopni sem grunur er um að hafi verið notað við hótanir. Húsleitir og handtökur fóru fram á fjórum stöðum og sex einstaklingar voru handteknir. Frá þessu greinir Lögrelan á Norðurlandi eystra á Facebook-síðu sinni.Auk þess var hald lagt á töluvert magn fíkniefna, fjármuni, eggvopn, skotvopn, skotfæri og meintan ávinning af brotastarfsemi. Í færslunni segir að rannsókn beinist að fjórum sakborningum þar sem tveir eru undir 18 ára aldri. Allir hafi verið látnir lausir og málið sé í rannsókn. Lögregla óskar eftir upplýsi