Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Rannsóknarnefnd vill að öryggi verði bætt þar sem banaslys varð vegna grjóthruns

Rannsóknarnefnd samgönguslysa vill að Vegagerðin ráðist í viðeigandi úrbætur til að bæta umferðaröryggi á hringveginum undir Steinafjalli í Eyjafjöllum. Vegarkaflinn er þekktur grjóthrunsstaður og varð hrun úr fjallinu konu að bana í mars.Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu nefndarinnar eftir rannsókn hennar á banaslysinu. Nefndin vísar bæði til þess að grjóthrun er mun algengara en skráðar heimildir segja til um, að mati heimamanna, og að umferð um veginn hefur fimmfaldast frá aldamótum. Þar af leiðir að hætta á því að grjót falli á bíla er meiri en áður.Nefndin segir að grjóthrun úr fjallinu sé algengast á haustin og vorin. Hún vill að Vegagerðin vinni þegar að úrbótum á veginum. Þar eru grjóthrunsmerki.Konan sem lést var bílstjóri í Kia Sportage-fólksbíl sem hún ók austur eftir
Rannsóknarnefnd vill að öryggi verði bætt þar sem banaslys varð vegna grjóthruns

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta