Það er fyrirtækið WPD Ísland sem áformar að reisa vindaflsvirkjun á tæplega 37 hektara svæði á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi í Langanesbyggð. Þetta er innst á Langanesi í landi fjögurra eyðijarða; Sóleyjarvalla, Hóls, Hraunkots og Staðarsels.Í matsáætlun sem kom út 11. desember kemur fram að afl fyrirhugaðrar virkjunar er 532,8 megavött. Til samanburðar er Kárahnjúkavirkjun, langstærsta virkjun landsins, 690 megavött og vindorkuver Landsvirkjunar við Vaðöldu verður 120 megavött, tæplega þriðjungi minna en fyrirhugað orkuver WPD á Langanesi. Þar verða reistar 28 vindmyllur.Gert er ráð fyrir að reisa allt að 74 vindmyllur í áföngum, allt að 210 metra háar, og að framkvæmdin taki um fimm til sjö ár með undirbúningsvinnu. Næsti þéttbýlisstaður er Þórshöfn, en næstu vindmyllur verða í aðeins 3,