Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Spretthópur Ingu Sæland kannar aldurstakmark á samfélagsmiðla

„Það á ekki að hanga á þessu mjög lengi, það er svolítið Inga mín,“ segir Sigurður Helgi Pálmason alþingismaður úr Flokki fólksins.Sigurður Helgi leiðir spretthóp á vegum mennta- og barnamálaráðuneytisins sem kannar möguleika á því að setja aldurstakmark á samfélagsmiðla á Íslandi. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, lýsti yfir vilja til að setja slíkt aldurstakmark í Kastljósi í síðustu viku og vinnan er nú hafin.Sigurður sagði að nú myndi hópurinn eiga samtöl við kennara, sálfræðinga og fleiri sem hafa kynnt sér málið vel. „Ég held að það sé líka mjög mikilvægt í öllum svona málum að eiga samtöl við krakka,“ sagði hann.Hlustaðu á viðtalið í spilaranum hér fyrir ofan.Morgunútvarpið er á Rás 2 milli klukkan 7 og 9 alla virka morgna.
Spretthópur Ingu Sæland kannar aldurstakmark á samfélagsmiðla

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta